Um okkur

Augnháralengingar í takt við nýja tíma

Rúmlega 90% kvenna lengja og sverta augnhárin sín á hverjum einasta degi. Það gefur okkur aukið sjálfstraust að líta í spegilinn og vera ánægðar með það sem við sjáum.

DivaProLash augnháralengingarnar eru hannaðar með það fyrir augum að lífið á hverjum degi verði aðeins auðveldara. Lengingarnar þola vætu, hita, kulda og maður vaknar ferskur.

Hver stendur á bak við DivaProLash

Hanna Kristín Didriksen Snyrtifræðingur og augnhára elskandi er hugsuðurinn á bak við DivaProLash.  

Um mitt ár 2019 þá rakst ég á augnhárabúnt sem voru gerð sérstaklega til þess að líma undir augnhárin og það kveikti áhugann minn á því að  búa til vörulínu fyrir heimagerðar  augnhára lengingar sem væri bæði endingargóðar og auðveldar í ásetningu. 

Ég hef alltaf elskað að vera tilhöfð en finnst þægilegt að þurfa lítið að hafa  fyrir deginum.  Ég hreinlega elska að vakna, þrífa húðína, tannbursta og geta síðan snúið mér að öðrum verkefnum.  DivaProLash augnhnáralengingin gerir mér það kleift að vera klár í daginn án  frekari umhugsunar.  Ég er bara fersk og full af sjálfstrausti í að blikka næsta mann.

Í rúmlega 3 ár er ég búin að vera prufa gæðin á vörunum undir allskonar mismunandi aðstæðum og get sagt með sanni að þessar vörur                                hefur staðist öll mín próf.

Hugsunin á bak við hönnunina á DivaProLash lengingum

Lengingarnar eru hannaðar til þess að mæta þínum þörfum hvort sem það er að vera með stuttar og eðlilegar lengingar eða langar og áberandi.

Við hönnun DivaProLash voru nokkur atriði í fyrirrúmi: 

  1. Gæði
  2. Einfalt að setja á
  3. Helst vel á undir mismunandi aðstæðum
  4. Auðvelt að lagfæra
  5. Lengir hæfilega, dekkir og krullan er falleg
  6. Passar í snyrtibudduna
  7. Verð sem hentar fyrir alla

Markmið 

Að bjóða upp á gæði, þjónustu og nýjungar í takt við þörfina á markaðnum.  Sveigjanleiki og þjónusta er okkur mikilvæg og  þín ánægja er okkar markmið. 

Framtíðarsýn

Bjóða upp á úrval heimagerðra augnhárlenginga og aukahluta sem gera þér lífið auðvelt og skemmtileg.  Að sinna þörfum viðskiptavina og mæta þeirri eftirspurn sem myndast.  Að sjá til þess að þú fáir vörurnar þínar hratt og örugglega.  

Hvers vegna velja DivProLash

Vegna þess að við ábyrgjumst gæði og þjónustu.  Þú færð alla þá kennslu og stuðning frá okkur.  Við erum aðeins einum tölvupósti í burtu  frá þér.  Vertu alveg óhrædd við að senda fyrirspurnir á okkur hvort sem það er til þess að fá að vita hvað hentar þér best eða til þess að fá frekari upplýsingar.

Hröð afhending

Það er okkar markmið að þú fáir vöruna þína afhenta eins hratt og mögulegt er.  Ef þú pantar og greiðir fyrir kl 11.00 þá færðu vöruna þína samdægurs ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu.  Ef ekki þá strax næsta virka dag.

Ánægja

Segðu bless við svarta maskarabauga, við götóttar augnháralengingar eða fölsk augnhár sem haldast illa á eða eru til ama.  Bjóddu velkomið inn í þitt líf DivaProLash sem eru létt, einföld í ásetningu og haldast til lengri tíma.  Leyfðu þér að upplifa ferskleikann og ánægjuna þegar þú vaknar og lítur í spegilinn með þína eigin DivaProLash lengingu sérstaklega hannaða fyrir þig og þínar þarfir.